Dagskrá 2024
Opnað hefur verið fyrir skráningu í Sportabler á námskeið hjá Þórdísi Gylfadóttur. Námskeiðið hjá Þórdísi er aðallega ætlað börnum, unglingum og ungmennum en í boði verða tímar fyrir fullorðna ef áhugi er fyrir hendi.
Ath að tími kl.18.30 er ætlaður minna vönum börnum.
Þórdís hefur starfað sem reiðkennari í 15 ár. Hefur m.a. kennt við Háskólann á Hólum, hjá LBHÍ í Reiðmanninum auk reiðkennslu hjá fjölmörgum hestamannafélögum og er nú yfirþjálfari yngri flokka Spretts.
Dagsetningar:
15.jan - skráningu lýkur á miðnætti 14.janúar
22.jan
29.jan
5.feb
12.feb
Ef mæting er góð og áhugi er fyrir áframhaldandi námskeið stefnum við á að taka tveggja vikna hlé og svo verða kenndar 3 vikur. Tíminn kostar 10500kr.
Þess má geta að Máni greiðir 100% námskeiðsgjald fyrir börn, unglinga og ungmenni.
Kara og Birna sjá um skemmtanir.