top of page

Firmakeppni 2024

Updated: May 21

Firmakeppni Mána 2024 verður haldin

miðvikudaginn 22. maí og hefst keppnin kl.

18.30.

Við hvetjum Mánamenn til að taka þátt og

hafa gaman af enda hefur Firmakeppnin verið ein vinsælasta keppni sem haldin er hjá Mána og um að gera að vera með.


Keppt verður í eftirfarandi flokkum og í

þessari röð:

  • Pollaflokkur-teymingar

  • Pollaflokkur

  • B flokkur gæðinga

  • Barnaflokkur

  • Kvennaflokkur

  • Unglingaflokkur

  • Tamningaflokkur-hross f.2019 og 2020

  • Ungmennaflokkur

  • Heldri menn og konur (50 ára og eldri)

  • Parareið

  • A flokkur gæðinga


Aðeins skuldlausir félagsmenn eiga þátttökurétt, skráning er á staðnum og eru

engin skráningargjöld.

Í barna-, kvenna-og heldri mannaflokki

verður riðið hægt tölt og síðan yfirferðargangur.

A flokkur, riðið verður tölt, brokk og skeið

B flokkur, riðið verður hægt tölt, brokk og greitt tölt

Unglinga- og ungmennaflokkur, riðið verður

hægt tölt, brokk og yfirferðargangur.

Tamningaflokkur, riðið verður eftir vilja dómara.

Verðlaunaafhending fer fram í sal

reiðhallarinnar að móti loknu og boðið

verður uppá veitingar.

Bestu kveðjur

Stjórn Mána

172 views0 comments

Recent Posts

See All

Comentários


bottom of page